Hér skal sko blogga

Hjúkrunarfræðingar eftir rúmt ár í starfi

07.03.2009 18:20:56 / hjukkur

Matseðill á reunioni

Heil & sæl,

Meðfylgjandi er matseðill á B5 - ykkar verkefni er að velja þá rétti sem þið viljið snæða & setja í komment. Þannig staðfestið þið komu ykkar 14. mars & matarpöntun. Þetta verður að gerast fyrir klukkan átta 10. mars.

B5 - Bankastræti - næsta laugardagskvöld klukkan 19:00. Látið orðið berast af þessum matseðli & reunioninu.



3 Forréttir - 3 Entres


Tígrisrækjur
með grilluðum aspas & kóríanderfroðu
kr 1490

Nauta - Carpaccio
með sætum hnetur, balsamic gljáa, ólívuolíu & salati
kr 1390


Humarsúpa með brauðteningum
kr 1690


3 Aðalréttir - 3 Main´s

Lambafillet
með kartöflum dagsins, sveppum & lambagljáa
kr 2800


Þorskur
með polenta, rauðlauki, spínati, parmaskinku & paprikudressingu
kr 2600


Andabringa
með ratatouille, grænum baunum, eplum & appelsínusósu
kr 2800



3 Eftirréttir - 2 Desserts

Gatou Marcel
- frönsk súkkulaðikaka borin fram með ís
kr 990


Tarte Tatin
- frönsk eplakaka borin fram með sýrðum rjóma
kr 890


Ávaxtasalat
með vanillukremi
kr 790


» 40 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 20:40:17 / hjukkur

Breytt dagsetning á Reunioni

Vegna fjölda áskorana hefur reunionið verið fært fram um eina viku eða til 14. mars. Að öllum líkindum verða herlegheitin á efri hæðinni á Sólon þar sem við munum fyrst snæða huggulegan kvöldverð af sérstökum matseðli hússins. Barinn verður opinn sem & dansgólfið & við höfum salinn fyrir okkur til miðnættis. Þá höldum við saman á vit ævintýranna.

Mikilvægt að staðfesting berist fyrir 20. febrúar hér í kommentakerfið eða sendið meil á bergthey (hjá) landspitali.is


Ástar- & rokkkveðjur frá nefndinni
Nolli, Rut, Kristín, Bergþóra & Árdís

Að öllum líkindum verða herlegheitin á efri hæðinni á Sólon þar sem við munum fyrst snæða huggulegan kvöldverð af sérstökum matseðli hússins. Barinn verður opinn sem & dansgólfið & við höfum salinn fyrir okkur til miðnættis. Þá höldum við á vit ævintýranna.


» 24 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 21:26:32 / hjukkur

REUNION

Kæru bekkjarfélagar,
Nú er allt að gerast.....

Reunionið verður 7.mars og allir í fríi!

Þið ykkar sem eruð á Neskaupstað eða öðrum góðum stöðum pantið flug eða kaupið rútumiða því nú verður stuð og stemmari.

Upplýsingar munu birtast hér á síðunni okkar um leið og hlutirnir gerast. Nú er verið að staðfesta stað og safna tölvupóstföngum. Gott er ef þið vitið af einhverjum ekki á landinu eða komnum í annað djobb að setja komment hér á síðuna.

Sendið okkur línu með upplýsingum um hvar er hægt að ná í ykkur og hvort þið séuð að mæta á bergthey hjá landspitali punktur is. Staðfesting verður að berast fyrir 14. feb.

Rokkkveðja,
Reunionnefndin - Nolli, Bergþóra, Rut, Árdís og Kristín






» 29 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:06:58 / hjukkur

Heillandi störf á Snæfellsnesi

Sælir hjúkrunarfræðingar,

langaði til að vekja athygli ykkar á starfstækifærum hér á Snæfellsnesi. Um er að ræða lausar stöður bæði við heilsugæslurnar í Ólafsvík og Grundarfirði og eins á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Ég hef unnið á öllum þessum stöðum og verð að segja að það er mjög gaman en í senn krefjandi að vinna svona úti á landi. Með nýjum kjarsamningi eru launin búin að hækka enn meira svo þetta er drauma staða fyrir þá sem eru að safna pening. Mjög auðvelt er að fá leikskólapláss og sem dæmi má nefna þá komast börn inn ársgömul hér í Grundarfirði. Þettu er sem sagt þrjár stöður sem eru lausar (eða voru það síðast þegar ég vissi) og því tilvalið fyrir vini eða vinkonur að sækja um saman ;-) Ekki þarf endilega að festa sig í ár því ég veit að það vantar mjög mikið.

 

Ein á leið í fæðingarorlof og vantar afleysingu hehe

Kv. Dagný Ósk


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 17:07:44 / hjukkur

Nýr kjarasamningur???

Sæl öll,

Var að skoða nýjan kjarasamning. Veit ekki alveg hvað mér finnst. Er skapi næst að fella þessa vitleysu.

Hvað sýnist ykkur?

kv. Kristín

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 18:14:45 / hjukkur

Heyrðu nú mig????

Ekki svo mikið að gerast á þessari síðu :$  Hvað er eiginlega að frétta af ykkur öllum??  Vitum að það eru nokkur börn á leiðinni í bekknum okkar og nokkur nýfædd :) til hamingju með það allar. En hvað eru allir að bralla???  Endilega tjáið ykkur smá, megum ekki láta þessa síðu líka bara deyja út hérna!!!!  Koma svo ;)

Kv. Guðrún Valdís 
sem er ennþá hæstánægð á geðdeildinni sinni :haha:

» 11 hafa sagt sína skoðun

20.03.2008 21:37:47 / hjukkur

Til hamingju Sigrún

með litla strákinn þinn :) Þín er saknað á D-inu ;)

kv Berglind

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 12:44:22 / hjukkur

gAmAn sAmAn





Langaði bara að minna ykkur á hvað við skemmtum okkur svakalega vel síðasta sumar ... spurning hvort að það sé ekki komin tími til að endurtaka leikinn hér á klakanum ??

Kveðja Sigrún Birna


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 20:23:12 / hjukkur

Fór einhver á fundinn????

Hæ hæ

Var bara að spá hvort einhver hefði farið á fundinn í gær á Hilton í sambandi við ungliðadeildina og hvernig hann hefði verið?? Endilega tjáið ykkur :)

kv. Guðrún


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 21:32:49 / hjukkur

Ámótakveðja

Gleðileg áramót allar saman til sjálfra og sveittra. Vona að nýtt ár finni ykkur vel. Það er gaman að ykkur, hikk. Sjáumst:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 23:28:16 / hjukkur

Er þessi síða algjörlega dauð??

Hæ allir, hvað segiði, eru ekki allir í stuði?? Engin jólapróf og svona..................æði gæði. Allavegana, langaði bara að kasta á ykkur kveðju. Ég og Eggert erum loksins komin út til Kissimmee í Flórida. Eggert er byrjaður á fullu í skólanumk og ég bara að tjilla, fá smá tantantan, slappa af og vera í fríi. Berglind er einmitt hérna í Flórida núna og ég ætla að reyna að hitta á hana og hennar fylgdarlið.

Kveðja frá US of A

Árdís


» 14 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 10:36:57 / hjukkur

Ógreidd laun

Það nennir líklegast enginn að hugsa um þetta svona löngu eftir árshátíð og hvað þá útskrift, en við fengum semsagt vin minn til að klippa árshátíðarmyndband fyrir okkur og við lofuðum honum að borga honum eitthvað fyrir. Hann lagði heilmikla vinnu í þetta og mig langar náttúrulega að standa við orðin og ætla að borga honum fyrir þetta. Ef þið viljið hjálpa mér þá væri það æði. 500 kall á mann ætti að nægja, nú eða minna það er allt í lagi. Meira er líka í lagi. þið getið lagt inn á mig, munið að eyrnamerkja innlögn vegna myndbands eða nafnið ykkar eða bæði...Kennitalan mín er 111177-4659. reikn 1163 26 7746. 

Með þökkum

Þið eruð ótrúlega æðislegar og sætar og gáfaðar og fyndnar og tlc-aðar

kveðja, Nolli  


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 11:36:59 / hjukkur

könnun um kjör!

Jæja nú er á heimasíðu félags íslenskra hjúkrunarfræðinga könnun um skoðanir okkar á kaupi okkar og kjörum! Farið inn á hjukrun.is og þar er linkur inn á könnunina. Það er mikilvægt að sem flestir taki þá og ég tala nú ekki um okkur baráttuglaða fólkið! KOMA SVO VERA MEÐ.

Kveðja Elín Birna;)

Þegar þið komið inn á síðuna skrollið þið niður að link þar sem er mynd af peningabuddu...lítu svona út 04.11.2007. Smellið á nánar og svo viðeigandi könnun þar á eftir


Kjaranefnd óskar eftir aðstoð félagsmanna
Kjaranefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar til félagsmanna með viðhorfskönnun um kjarasamninga og kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga. Kjarasamningur milli FÍH og Fjármálaráðuneytis eru laus þann 30. apríl 2008
Nánar


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 00:54:11 / hjukkur

Bekkjarpartý

Jæja

 

Ég ætla að halda bekkjarpartý 29. september

Vonast til að sjá sem flesta, veit um nokkra sem mæta pott þétt en endilega tilkynnið þáttöku svo ég viti ca hve margir eru að koma ..

 

kv Hulda


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 19:28:54 / hjukkur

Varðandi félagið

Sæl öll, elskurnar mínar

Þannig er mál með vexti að nú er vinna í gangi hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga um endurskipulagningu félagsins. Þar á að líta á hinar ýmsu hliðar þess og í raun allt til umræðu. Eitt af því er aðkoma okkar nýgræðinganna og hjúkrunarfræðinema að félaginu. Mig langar til að setja saman hóp til að ræða sínar hugmyndir, langanir og skoðanir varðandi félagið. Það væri frábært að fá einhverja úr okkar frábæra árgangi í þennan hóp. Fyrirhugað að hittast líklega 1x kannski 2x, allt eftir því hve frjór hópurinn er. Einhverjir af 3ja árinu verða einnig með og einhverjir fleiri nýútskrifaðir. Stefnt er á að hittast í vikunni 23-29sept! (líklega fyrri part kvölds). Endilega kommentið hér fyrir neðan ef þið viljið taka þátt í þessari vinnu. Þetta er rosalega mikilvæg vinna sem getur haft mikil áhrif á skipulag FÍH....ef við viljum!

 Kær kveðja

Elín Birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Klukkan
Könnun
Ætlarðu á reunionið
11 atkvæði

Kannski
3 atkvæði

Er að vinna
2 atkvæði

Nei
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 19
Skemmtilegt gamandót